Formaður HSK hlýtur hvatningarverðlaun
Guðríður Aadnegard, formaður Héraðsambandsins Skarphéðins, hlaut í gær hvatningarverðlaun Dags gegn einelti. Forseti Íslands, Guðni Th. Jóhannesson og Lilja Alfreðsdóttir mennta- og menningarmálaráðherra afhentu Guðríði verðlaunin við hátíðlega athöfn í Rimaskóla.
Hér má sjá frétt mbl.is. Þar er einnig að finna myndir frá afhendingunni.
Fram kemur í frétt mbl.is frá athöfninni, að Guðríður varð fyrir valinu vegna þess ómetanlega starfs sem hún hefur unnið í eineltismálum undanfarin ár. Hún sé einnig góð fyrirmynd fyrir aðra kennara þegar kemur að samskiptamálum nemenda, að því er greint frá í tilnefningunni. Hún hafi í gegnum tíðina látið málefni nemenda sig sérstaklega varða og nálgast þau af mikilli hlýju og virðingu. Þá hafi Guðríður einnig látið til sín taka á vettvangi íþrótta þar sem hún starfaði í broddi fylkingar hjá HSK, UMFÍ og ÍSÍ. Þar hafi hún sem fyrr ávallt haft hag iðkenda að leiðarljósi og lagt ríka áherslu á góð samskipti innan vallar sem utan.
ÍSÍ óskar Guðríði hjartanlega til hamingju með verðskuldaða viðurkenningu.