Gildandi sóttvarnareglur framlengdar um tvær vikur
![](/library/Skrar/Um-iSi/Covid-19-og-ithrottahreyfingin/%c3%8d%c3%ber%c3%b3ttahreyfingin%20og%20covid.jpg?proc=400x400)
Heilbrigðisráðherra hefur tilkynnt að gildandi sóttvarnareglur verði framlengdar um tvær vikur, eða til og með 20. október næstkomandi. Til áminningar eru hér helstu atriði er snerta íþróttahreyfinguna:
- Almennar fjöldatakmarkanir eru 500 manns.
- Leyfilegur fjöldi iðkenda á æfingum og í keppni hjá börnum og fullorðnum er 500 manns.
- Heimilt er að hafa allt að 1500 manns í hólfi í áhorfendastúkum að því gefnu að áhorfendur framvísi neikvæðri niðurstöðu í hraðprófi sem má ekki vera eldra en 48 klst.
- Þar sem hraðpróf eru ekki notuð er heimilt að hafa allt að 500 manns í hólfi.
- Skrá þarf alla gesti með nafni, símanúmeri og kennitölu.
- Á viðburðum innanhúss er grímuskylda nema þar sem búið er að sýna framá neikvæða niðurstöður úr hraðprófum, þá má taka niður grímu eftir að komið er í sæti.
Hér á heimasíðu ÍSÍ er hægt að skoða reglur sérsambanda vegna COVID-19 og við minnum svo á leiðbeiningar um smitrakningu í íþróttum sem má nálgast hér.