Beint á efnisyfirlit síðunnar

Á döfinni

22.03.2026 - 22.03.2026

Ársþing HHF 2026

Ársþing Héraðssambandsins Hrafna-Flóka (HHF)...
25.03.2026 - 25.03.2026

Ársþing LSÍ 2026

Ársþing Lyftingasambands Íslands (LSÍ) verður...
25.03.2026 - 25.03.2026

Ársþing KÍ 2026

Ársþing Klifursambands Íslands (KÍ) verður...
16

Ný stjórn BTÍ

17.08.2020

Ársþing Borðtennissambands Íslands (BTÍ) 2020 fór fram laugardaginn 8. ágúst sl. í Íþróttamiðstöðinni í Laugardal. Kosin var ný stjórn BTÍ. Ingimar Ingimarsson fyrrverandi formaður gaf ekki kost á sér til endurkjörs, en hann hafði verið í stjórn sambandsins síðustu 10 ár og formaður síðan 2016. Formaður var einróma kosinn Örn Þórðarson og í stjórn þau Jóhannes Bjarki Urbancic, Hákon Atli Bjarkason, Kári Mímisson og Markús Meckl en sex voru í framboði til stjórnar. Varamenn í stjórn voru kosin þau Brynjar Marinó Ólafsson, Styrmir Stefnisson og Anna Sigurbjörnsdóttir. Skoðunarmenn reikninga voru kosnir þeir Árni Siemsen og Kristján Örn Elíasson. Í ræðu sinni í lok þingsins lagði nýr formaður sambandsins, Örn Þórðarson, áherslu á samvinnu og samtakamátt hreyfingarinnar. Andri Stefánsson, sviðsstjóri Afreks- og Ólympíusviðs ÍSÍ var fulltrúi ÍSÍ á þinginu.

Fundargerð

Ársskýrsla BTÍ