Ísland á iði - Áfram Ísland!
27.03.2020
„Ísland á iði í 28 daga - 30 mínútur á dag“ er facebooksíða þar sem ÍSÍ setur inn fjölbreytta hreyfingu, fróðleik, myndir, myndbönd og almenna skemmtun sem mun nýtast öllum þeim sem áhuga hafa í þær 4 vikur sem samkomubannið er við líði.
Hugmyndir að hreyfingu eru m.a.:
Hreyfibingó - Almennar æfingar fyrir fjölskylduna
Hreyfispilið - Skemmtilegt spil fyrir fjölskylduna
Hreyfiæfingar fyrir börn á leikskólaaldri
Hvað er kóróna veiran? Skemmtilega framsett úskýring fyrir börn um hvað kóróna veiran er
Íþróttasamband fatlaðra - Hreyfiáskoranir
Kennslumyndbönd - Styrk- og teygjuæfingar
Knattþrautir - Knattspyrnuæfingar