Rýnifundur um áherslur íþróttahreyfingarinnar í almenningsíþróttum
11.03.2020
Þriðjudaginn 10. mars bauð Almenningsíþróttasvið og Almenningsíþróttanefnd Íþrótta- og Ólympíusambands Íslands til rýnifundar um áherslur íþróttahreyfingarinnar í almenningsíþróttum. Gestir fundarins voru stjórnar- og starfsfólk ÍSÍ, nefndarmenn sviðsins, starfsmenn sambandsaðila ÍSÍ, starfmenn Ungmennafélags Íslands (UMFÍ), starfsmenn nokkurra íþróttafélaga og starfsmaður frá Embætti landlæknis.
Leitað var svara við eftirfarandi spurningum:
- Með hvað hætti getur íþróttahreyfingin eflt íþróttaiðkun og hreyfingu almennings?
- Með hvaða hætti getur íþróttahreyfingin eflt íþróttaiðkun og hreyfingu innan íþróttafélaga?
- Vill íþróttahreyfingin tengjast fyrirtækjaíþróttum og með hvaða hætti þá?
Fundurinn var vel sóttur og komu fram margar spennandi hugmyndir og svör sem sviðið mun fara í að skoða nánar.