Beint á efnisyfirlit síðunnar

Á döfinni

26.07.2024 - 28.11.2019

París 2024

Ólympíuleikarnir fara fram í París í...
20.09.2024 - 21.09.2024

Ársþing SKÍ 2024

Ársþing Skíðasambands Íslands verður haldið...
22.10.2026 - 28.11.2019

YOG 2026 - Dakar

Ólympíuleikar ungmenna (YOG) fara fram í...
30

Þjálfaranámskeið hjá HSÍ

20.01.2020

Handknattleikssamband Íslands (HSÍ) hefur undanfarið ár staðið fyrir Mastercoach námskeiði fyrir íslenska handknattleiksþjálfara, en þetta er í fyrsta skipti sem slíkt námskeið er haldið hér á landi. EHF Mastercoach er æðsta gráða þjálfaramenntunar í handbolta í Evrópu. Fór fyrsti hluti námskeiðsins fram í mars 2019. Þátttakendur í námskeiðinu eru flestir reynslumiklir þjálfarar sem koma að þjálfun meistaraflokka hér heima og hafa víðtæka þekkingu á íþróttinni. Hópurinn hittist sjö sinnum yfir árið og í desember síðastliðnum útskrifuðust 23 handknattleiksþjálfarar með Mastercoach gráðu EHF. Þess má geta að í ár verða þjálfarar sem þjálfa landslið og lið í Meistaradeild Evrópu skyldugir til að hafa lokið þessari menntun. 

Margir af reynslumestu þjálfurum Íslands komu að kennslu á námskeiðinu, meðal annarra Guðmundur Guðmundsson landsliðsþjálfari Íslands og Dagur Sigurðsson landsliðsþjálfari Japans.

Háskólinn í Reykjavík sá um bóklegu kennsluna. Námskeiðið var styrkt af Ólympíusamhjálpinni.