Lausanne 2020 - stórsvig pilta
13.01.2020
Í dag fór fram keppni í stórsvigi pilta á Vetrarólympíuleikum ungmenna. Gauti Guðmundsson var ræstur 56. af 77. keppendum í fyrri ferð. Þar náði hann 36. besta tímanum. Í seinni ferðinni gerði hann enn betur þegar hann náði 27. besta tímanum og endaði í 29. sæti samanlagt. Heildarúrslit stórsvigskeppninnar má finna hér.
Á morgun þriðjudag er komið að síðasta keppnisdegi okkar fólks í alpagreinum þegar keppt verður í svigi. Fyrri ferðin hjá stúlkunum hefst kl. 8.30 og hjá drengjunum kl. 10.00 að íslenskum tíma.