Fræðslufundur UMSS 2019
![](/library/Myndir/Frettamyndir/Fraedslusvid/Fr%c3%a6%c3%b0sludagur%20UMSS%202019%20-%20Copy%20(1).jpg?proc=400x400)
Ungmennasamband Skagafjarðar (UMSS) stóð fyrir viðburðinum Fræðslufundur UMSS 2019 í Miðgarði í Skagafirði miðvikudaginn 30. október síðastliðinn. Þessi árlegi viðburður er liður í stefnu UMSS í fræðslumálum. Ágætis mæting var frá fulltrúum aðildarfélaga UMSS enda voru fræðslufyrirlestrar fjölbreyttir og góð umræða um samvinnu í þessum efnum að fyrirlestrum loknum. Baldur Þór Ragnarsson körfuknattleiksþjálfari var með fyrirlestur um liðsmenningu mfl. Tindastóls í körfuknattleik karla, Viðar Sigurjónsson skrifstofustjóri ÍSÍ á Akureyri var með kynningu á styttri útgáfum af stjórnendanámskeiðum ÍSÍ og Sölvi Tryggvason var með athyglisverðan fyrirlestur sem hann kallaði „Sigrum streituna“. Ingi Þór Ágústsson úr framkvæmdastjórn ÍSÍ sá um fundarstjórn.