EYOF 2019 - Hátíðinni slitið
27.07.2019
Þá er síðasta keppnisdegi lokið á Ólympíuhátíð Evrópuæskunnar sem fram fer í Bakú í Aserbaídsjan. Þeir einu úr hópnum sem kepptu í dag voru drengirnir í handknattleik. Léku þeir um fimmta sætið við Slóvena, endaði leikurinn 24-17 fyrir Ísland og endaði liðið því í 5. sæti mótsins.
Hátíðinni verður slitið í kvöld með dagskrá í Kristalshöllinni í Bakú. Á morgun er svo framundan heimferð hjá hópnum.