EYOF 2019 - Birna Kristín á siglingu
Birna Kristín Kristjánsdóttir keppir í frjálsíþróttum á Ólympíuhátíð Evrópuæskunnar sem fer nú fram í Bakú. Birna er fædd árið 2002 og er því 17 ára gömul. Birna hefur verið á mikilli siglingu undanfarin ár, m.a. náði hún þeim merka áfanga árið 2017, á fimmtánda aldursári, að verða Íslandsmeistari í 60m hlaupi kvenna á 7,88 sekúndum á Meistaramóti Íslands innanhúss. Hún á ekki langt að sækja hraðann, því móðir Birnu Kristínar, Geirlaug Geirlaugsdóttir úr Ármanni varð Íslandsmeistari á 14. aldursári og faðir hennar Kristján Harðarson, setti Íslandsmet í langstökki árið 1984 sem stóð í tíu ár (7,79m). Hann keppti einnig fyrir Íslands hönd á Ólympíuleikunum 1984 og lenti þar í 22. sæti, stökk 7,09 metra.
Birna Kristín er Íslandsmeistari kvenna í langstökki 2019. Hún bætti nýverið eigið aldursflokkamet 16-17 ára í langstökki á unglingamóti í Þýskalandi með því að stökkva 6,12m. Þá settu þær Birna Kristín, Þórdís Eva Steinsdóttir, Tiana Ósk Witworth og Guðbjörg Jóna Bjarnadóttir aldursflokkamet í 4x100 metra boðhlaupi á sama móti með tímanum 45,75 sekúndum. Það verður spennandi að fylgjast með þessari flottu íþróttakonu á Ólympíuhátíð Evrópuæskunnar, en þá mun Birna taka þátt í langstökki.
Meðfylgjandi mynd er af Birnu þegar hún tók þátt í hástökki á Smáþjóðaleikunum í Svartfjallalandi sem fram fóru í byrjun júní sl.