Fræðsla um lyfjamál á Akureyri
18.02.2019
Næstkomandi fimmtudag, 21. febrúar, mun Birgir Sverrisson frá Lyfjaeftirliti Íslands halda fræðsluerindi þar sem fjallað verður almennt um lyfjamál í íþróttum og samfélaginu. Fundurinn fer fram í Íþróttahöllinni á Akureyri frá kl.16:30-18:00.
Til hvers er lyfjaeftirlit?
Lyfjamál í íþróttum
Forvarnir og lýðheilsumál
Fæðubótarefni
Undanþágur frá bannlista
Lyfjapróf og framkvæmd þess
Allir velkomnir. Skráning fer fram hér á vefsíðu ÍSÍ.
Lyfjaeftirlit Íslands, Íþrótta- og Ólympíusamband Íslands, Íþróttabandalag Akureyrar og Akureyrarbær standa að fundinum.