Beint á efnisyfirlit síðunnar

Á döfinni

24

300 dagar til Evrópuleika

25.08.2018

Evrópuleikarnir 2019 fara fram í borginni Minsk í Hvíta-Rússlandi þann 21.-30. júní og í dag eru 300 dagar til leika. Leikarnir eru haldnir á vegum Evrópusambands Ólympíunefnda (EOC). Ýmis stórmót hafa verið haldin í Minsk síðastliðin ár og eru íþróttaleikvangar og aðrar aðstæður til íþróttakeppni til fyrirmyndar.

Meðal annars verður keppti í bogfimi, frjálsíþróttum, badminton, 3x3 körfubolta, hjólreiðum, fimleikum, júdó, karate, borðtennis og glímu. Í tíu greinum af þeim 15 sem keppt verður í geta keppendur náð lágmörkum á Ólympíuleikana í Tókýó í Japan árið 2020. Gert er ráð fyrir um 4000 keppendum frá 50 löndum. Til samanburðar var keppt í 20 íþróttagreinum á fyrstu Evrópuleikunum, sem fóru fram í Bakú í Azerbaijan í júní árið 2015, en þá var fjöldi keppenda 6000 frá 50 löndum.

18 Íslendingar kepptu á Evrópuleikunum í Bakú í níu íþróttagreinum, en spennandi verður að sjá hvaða íslenska íþróttafólk tryggir sig inn á leikana á komandi mánuðum. 
Setningarhátíð leikanna fer fram á Dinamo leikvellinum kvöldið 21. júní. 

Vefsíðu Evrópuleikanna má sjá hér.

Evrópuleikarnir eru einnig á Facebook.