Áhugaverð myndbönd á Ólympíustöðinni
26.03.2018
Ólympíustöðin er ókeypis vettvangur sem sýnir beint frá íþróttaviðburðum, er með nýjustu fréttir og býður upp á útsendingar tileinkaða íþróttum og íþróttamönnum allt árið um kring. Stöðin leggur áherslu á afreksíþróttamenn og þeirra leið að meiri árangri.
Á Ólympíustöðinni geta notendur upplifað kraft íþróttanna og Ólympíuhreyfingarinnar allt árið, hvar sem er og hvenær sem er.
Hægt er að horfa á Ólympíustöðina á vefsíðu Olympic Channel. Íþróttamenn og aðdáendur geta einnig fylgt Ólympíustöðinni á samfélagsmiðlasíðum hennar, Facebook, Instagram, Twitter og YouTube.
Hér má sjá næstu viðburði sem hægt er að fylgjast með.