Úthlutun úr Ferðasjóði íþróttafélaga vegna keppnisferða ársins 2017
Búið er að úthluta styrkjum úr Ferðasjóði íþróttafélaga til íþrótta- og ungmennafélaga, vegna keppnisferða innanlands ársins 2017.Til úthlutunar að þessu sinni voru 127 milljónir króna. Styrkirnir eru greiddir beint til félaga og deilda en hér fyrir neðan má sjá samantekt á skiptingunni tekið saman pr. íþróttahérað. Afar mismunandi er hversu mörg félög eiga aðild að hverju héraði og hversu mörg félög innan hvers héraðs sækja um styrki úr sjóðnum.
Að þessu sinni bárust sjóðnum 250 umsóknir frá 129 félögum úr 21 íþróttahéraði vegna 2.972 keppnisferða í 21 íþróttagrein. Heildarupphæð umsókna var kr. 466.663.237,-. Þau félög sem sóttu um styrk geta nú farið inn í umsókn sína í gegnum vefslóðina sem fylgdi stofnun umsóknarinnar og séð skiptingu styrkja pr. ferð.
Ferðasjóður íþróttafélaga er fjármagnaður með fjárframlagi frá ríkinu. ÍSÍ er falin umsýsla sjóðsins, útreikningur styrkja og úthlutun úr sjóðnum. Fjárstuðningur ríkisins til niðurgreiðslu ferðakostnaðar íþróttafélaga er ómetanlegur og ljóst að styrkir úr sjóðnum hafa afar jákvæð áhrif á þátttöku íþróttafélaga á landsvísu í íþróttamótum innanlands.
Íþróttahérað | Úthlutun |
Héraðssamband Snæfellsness og Hnappadalssýslu | 3.047.875 |
Héraðssambandið Skarphéðinn | 3.692.935 |
Héraðssamband Strandamanna | 22.806 |
Héraðssamband Vestfirðinga | 10.191.688 |
Héraðssamband Þingeyinga | 4.522.277 |
Íþróttabandalag Akraness | 1.181.801 |
Íþróttabandalag Akureyrar | 29.993.437 |
Íþróttabandalag Hafnarfjarðar | 2.869.112 |
Íþróttabandalag Reykjavíkur | 14.434.905 |
Íþróttabandalag Vestmannaeyja | 12.203.727 |
Íþróttabandalag Reykjanesbæjar | 2.281.960 |
Íþróttabandalag Suðurnesja | 2.107.364 |
Ungmenna- og íþróttasamband Austurlands | 17.326.598 |
Ungmenna- og íþróttasamband Fjallabyggðar | 924.259 |
Ungmennasamband Borgarfjarðar | 48.392 |
Ungmennasamband Eyjafjarðar | 832.572 |
Ungmennasamband Kjalarnesþings | 9.595.816 |
Ungmennasamband Skagafjarðar | 4.961.372 |
Ungmennasamband Austur-Húnvetninga | 14.296 |
Ungmennasambandið Úlfljótur | 5.909.373 |
Ungmennasamband Vestur-Húnvetninga | 836.259 |
Samtals | 126.998.824 |