Beint á efnisyfirlit síðunnar

Á döfinni

26.07.2024 - 28.11.2019

París 2024

Ólympíuleikarnir fara fram í París í...
20.09.2024 - 21.09.2024

Ársþing SKÍ 2024

Ársþing Skíðasambands Íslands verður haldið...
22.10.2026 - 28.11.2019

YOG 2026 - Dakar

Ólympíuleikar ungmenna (YOG) fara fram í...
30

Fræðandi myndbönd hjá Sýnum karakter

24.01.2018

Mörg áhugaverð og fræðandi myndbönd má sjá á Youtube-síðu Sýnum karakter. Þar má meðal annars sjá upptökur af tveimur ráðstefnum sem haldnar voru í tengslum við verkefnið Sýnum karakter þar sem þjálfarar, afreksíþróttafólk og fleiri deila sinni reynslu úr íþróttaheiminum. 

Sýnum karakter er samstarfsverkefni  Íþrótta- og Ólympíusambands Íslands og Ungmennafélags Íslands (UMFÍ). Sýnum karakter fjallar um þjálfun sálrænnar og félagslegrar færni barna og ungmenna í íþróttum. Hugmyndafræði verkefnisins byggir á að hægt sé að þjálfa og styrkja sálræna og félagslega færni iðkenda eins og líkamlega færni. 

Vefsíða Sýnum karakter er synumkarakter.is og verkefnið er einnig með facebook-síðu undir nafninu Sýnum karakter.