Fyrirmyndardeildir ÍSÍ - Höttur
![](/library/Myndir/Frettamyndir/Fraedslusvid/H%c3%b6ttur,%20tv%c3%a6r%20deildir,%206.%20jan.%20.jpg?proc=400x400)
Tvær deildir Íþróttafélagsins Hattar á Egilsstöðum fengu viðurkenningu sem fyrirmyndardeildir ÍSÍ 6. janúar síðastliðinn. Deildirnar tvær, knattspyrnudeild og fimleikadeild, voru að fá endurnýjun viðurkenningarinnar í annað sinn en endurnýja þarf þessa viðurkenningu á fjögurra ára fresti. Það var Viðar Sigurjónsson skrifstofustjóri ÍSÍ á Akureyri sem afhenti viðurkenningarnar á þrettándagleði Hattar og Fljótsdalshéraðs í Tjarnargarðinum á Egilsstöðum að viðstöddu fjölmenni.
Á myndinni eru frá vinstri; Adda Birna Hjálmarsdóttir formaður íþrótta- og tómstundanefndar Fljótsdalshéraðs, Anna Dís Jónsdóttir formaður fimleikadeildar Hattar, Árni Ólason formaður knattspyrnudeildar Hattar, Davíð Þór Sigurðarson formaður Íþróttafélagsins Hattar og Viðar Sigurjónsson.