Lárus L. Blöndal sæmdur riddarakrossi
02.01.2018
Forseti Íslands, Guðni Th. Jóhannesson, sæmdi í gær tólf Íslendinga heiðursmerki hinnar íslensku fálkaorðu, venju samkvæmt á nýársdag. Lárus L. Blöndal, forseti Íþrótta- og Ólympíusambands Íslands, var sæmdur riddarakrossi fyrir störf í þágu íþróttahreyfingarinnar en Lárus hefur um langt árabil gegnt fjölbreyttum forystuhlutverkum innan hreyfingarinnar og átt hlutdeild í mörgum stærstu framfaraskrefum sem tekin hafa verið í hreyfingunni.
Stjórn og starfsfólk Íþrótta- og Ólympíusambands Íslands óskar Lárusi innilega til hamingju með viðurkenninguna.
Fréttatilkynninguna frá forseta Íslands má lesa hér á vefsíðu forsetans, forseti.is.