Fróðleikur á netinu
![](/library/Myndir/Logo/ISI-logo_2012a%20-%20Copy%20(1).jpg?proc=400x400)
Alþjóðaólympíunefndin er á vefsíðu sinni með svæði sem kallast „The Athletes´ Kit“ og eru þar tenglar á fróðleik sem snýr að námi fyrir íþróttafólk og hvernig á að nýta sér þá möguleika sem eru fyrir hendi. Þessa síðu má sjá hér
Áhugavert er að skoða síðuna Idrottsforum. Þar er fjallað um bækur og greinar sem eru gefnar út á Norðurlöndum og víðar og tengjast íþróttastarfi. Eins eru þar upplýsingar um íþróttaráðstefnur og aðra íþróttaviðburði.
Á vefsíðu Team Danmark eru skýrslur og rannsóknir sem snúa að afreksíþróttum í Danmörku og víðar.
Enn fleiri skýrslur má finna á vefsíðu IDAN í Danmörku. Hvort heldur fjallað er um afreksíþróttir, íþróttamannvirki, lýðheilsu og annað sem tengist íþróttastarfinu þá eru eflaust rannsóknir og greinar til um málefnið hjá IDAN.