Tvö ár í Strandarleikana í San Diego
![](/library/Myndir/Frettamyndir/Afreks-og-olympiusvid/15940586_384897558526767_5893998761741936275_n.jpg?proc=400x400)
Fyrstu Strandarleikarnir (ANOC World Beach Games) verða haldnir í San Diego í Bandaríkjunum í október 2019. Heimssamband Ólympíunefnda (ANOC) stendur fyrir leikunum.
Á leikunum mun fara fram keppni í 22 íþróttagreinum og koma þátttakendur frá 200 löndum. Íþróttagreinarnar sem keppt verður í eru meðal annarra hjólabretti, brimbretti og íþróttaklifur. Keppni fer aðallega fram á tveimur stöðum, á Mission strönd og nálægt miðbæ San Diego. Á setningar- og lokahátíðir er búist við um 40 þúsund áhorfendum og verið er að finna hentuga staðsetningu fyrir hátíðirnar.
Fulltrúar leikanna í San Diego hafa undirbúið komu leikanna til borgarinnar vel, en þeir settu meðal annars upp vefsíðu leikanna sem sjá má hér og fésbókarsíða leikanna er hér.