Beint á efnisyfirlit síðunnar

Á döfinni

26.07.2024 - 28.11.2019

París 2024

Ólympíuleikarnir fara fram í París í...
20.09.2024 - 21.09.2024

Ársþing SKÍ 2024

Ársþing Skíðasambands Íslands verður haldið...
22.10.2026 - 28.11.2019

YOG 2026 - Dakar

Ólympíuleikar ungmenna (YOG) fara fram í...
30

Evrópuleikarnir 2019

28.06.2017

Borgin Minsk í Hvíta-Rússlandi virðist vera vel í stakk búin til þess að halda Evrópuleikana 2019. Nokkur stórmót hafa verið haldin í Minsk síðastliðin ár, meðal annars ýmis Heimsmeistaramót og Evrópumeistaramót og eru íþróttaleikvangar og aðrar aðstæður til íþróttakeppni til fyrirmyndar.

Evrópuleikarnir munu fara fram í annað sinn árið 2019, en fyrstu Evrópuleikarnir fóru fram í Bakú í Azerbaijan í júní árið 2015. Leikarnir eru haldnir á vegum Evrópusambands Ólympíunefnda (EOC). Sú ákvörðun að Minsk yrði gestgjafi leikanna var tekin þann 21. október 2016 á 45. ársþingi Evrópusambands Ólympíunefnda í Minsk.

18 Íslendingar kepptu á Evrópuleikunum í Bakú í níu íþróttagreinum. Samtals kepptu 6000 íþróttamenn á leikunum frá 50 löndum. Keppt var í 20 íþróttagreinum í Bakú. 

Vefsíðu Evrópuleikanna má sjá hér.

Evrópuleikarnir eru einnig á Facebook.

Myndir með frétt