Hjólað í vinnuna 3. - 23. maí
12.04.2017
Það er kominn tími til að fara yfir bremsurnar, gírana og dekkin. Hjólað í vinnuna 2017 er dagana 3.- 23. maí og hefst skráning þann 19. apríl. Glæsilegir vinningar frá Erninum verða dregnir út í Popplandi daglega á meðan á verkefninu stendur.
Hér má sjá upplýsingar um skráningu.
Hér má finna ýmsar leiðbeiningar og skráningarblöð sem hægt er að prenta út og hengja upp t.d. á kaffistofunni.