Beint á efnisyfirlit síðunnar

Á döfinni

21.01.2026 - 21.01.2026

RIG ráðstefna

Í tengslum við RIG þá verður ráðstefna um...
17

Breytingar á Ól í Tókýó 2020

03.04.2017

Næstu Ólympíuleikar munu fara fram í Tókýó í Japan árið 2020. Á fundi Alþjóðaólympíunefndarinnar, sem fram fór í Ríó 2016, tók nefndin ákvörðun um að bæta við fimm íþróttagreinum sem keppt verður í í Tókýó. Það eru hafnabolti og mjúkbolti, karate, hjólabretti, íþróttaklifur (sports climbing) og brimbrettabrun. 

Nú hefur Alþjóðaólympíunefndinni borist 68 umsóknir um breytingar á viðburðum og íþróttagreinum á Ólympíuleikunum í Tókýó.

Skipuleggjendur í Tókýó munu skoða málið á næstu vikum en umsóknarferlinu lýkur 5. maí. 

Fréttin birtist á vef Inside the Games og má sjá hér