Beint á efnisyfirlit síðunnar

Á döfinni

25.03.2026 - 25.03.2026

Ársþing LSÍ 2026

Ársþing Lyftingasambands Íslands (LSÍ) verður...
25.03.2026 - 25.03.2026

Ársþing KÍ 2026

Ársþing Klifursambands Íslands (KÍ) verður...
26.03.2026 - 26.03.2026

Ársþing HSK 2026

Ársþing Héraðssambandsins Skarphéðins (HSK)...
21

Námskeið ungra þátttakenda í Ólympíu

28.02.2017

Íþrótta- og Ólympíusamband Íslands auglýsingir eftir tveimur þátttakendum, kven- og karlkyns, til þáttöku á námskeiði ungs íþróttafólks (20 til 35 ára) á vegum alþjóða Ólympíuakademíunnar í Ólympíu í Grikklandi dagana 16. júní-1.júlí n.k. Að þessu sinni er aðal umfjöllunarefnið íþróttastjórnun og ólympíuhreyfingin, en auk þess verður lögð áhersla á siðfræði og menntun.

Flugferðir, gisting og uppihald eru þátttakendum að kostnaðarlausu.
Leitað er að einstaklingum sem náð hafa mjög góðum árangri í íþróttagrein (-greinum) og/eða sinnt kennslu/þjálfun/félagsstörfum innan íþróttahreyfingarinnar, ásamt því að sýna málefnum ólympíuhreyfingarinnar sérstakan áhuga. Umsækjendur þurfa að hafa gott vald á ensku og/eða frönsku og vera fyrirmynd annars æskufólks í hvívetna.

Umsóknum skal skilað á þar til gerðu eyðublaði til skrifstofu ÍSÍ, Íþróttamiðstöðinni í Laugardal eigi síðar en 28. febrúar. Hægt er að nálgast eyðblaðið hér.

Umsókn skal skila á ensku og skulu tvær passamyndir fylgja.

Frekari upplýsingar veitir Ragnhildur Skúladóttir sviðsstjóri þróunar-og fræðslusviðs ÍSÍ á ragnhildur@isi.is eða í síma 514-4000.