Beint á efnisyfirlit síðunnar

Á döfinni

05.12.2024 - 05.12.2024

Fundur

Fundur verður haldinn í framkvæmdastjórn ÍSÍ...
21

Nám á netinu

23.02.2017Eftir íþróttaferilinn stendur mikið af íþróttafólki á tímamótum. Samkvæmt Aðgerðaráætlun Alþjóðaólympíunefndarinnar 2020 (Olympic Agenda 2020) er eitt aðalmarkmið nefndarinnar að efla stuðning við íþróttafólk innan og utan íþrótta og auka möguleika þeirra á atvinnuferli eftir íþróttaferilinn.

Opnuð hefur verið vefsíða sem kallast „Lærdómsgátt íþróttamannsins“ (Athlete Learning Gateway) og ætluð er Ólympíuförum, afreksíþróttafólki og þjálfurum þeirra. Vefsíðan býður upp á fjöldan allan af námskeiðum, en markmiðið er að aðstoða íþróttafólk við að móta framtíð sína, t.d. að ná draumastarfinu sínu með góðum undirbúningi og bæta frammistöðu sína á vinnumarkaði. Það eina sem þarf að gera til þess að geta setið námskeið er að skrá sig inn. Á vefsíðunni eru nú 13 þúsund skráðir notendur frá 194 löndum.

Á svæði sem kallast „Samfélag“ fær íþróttafólk einnig tækifæri á því að hafa samskipti hvert við annað með því að deila reynslu, upplýsingum og innsýn. Mikið af Ólympíuförum, t.d. Michael Johnson spretthlaupari, Kirsty Coventry sundkona, Lawrence Ndlovu ræðari og Angela Ruggiero íshokkí leikmaður auk þjálfara, íþróttastofnana, íþróttaleiðtoga og leiðandi fræðimanna, hafa lagt til einstakt efni á síðuna.

Hér má sjá yfirlit yfir öll 20 námskeiðin sem í boði eru á vefsíðunni.