Beint á efnisyfirlit síðunnar

Á döfinni

22.03.2026 - 22.03.2026

Ársþing HHF 2026

Ársþing Héraðssambandsins Hrafna-Flóka (HHF)...
25.03.2026 - 25.03.2026

Ársþing LSÍ 2026

Ársþing Lyftingasambands Íslands (LSÍ) verður...
25.03.2026 - 25.03.2026

Ársþing KÍ 2026

Ársþing Klifursambands Íslands (KÍ) verður...
18

Fyrsta keppnisdegi EYOWF lokið

13.02.2017

Í dag hófst keppni á Vetrarólympíuhátíð Evrópuæskunnar sem fram fer í Erzurum. Stúlkurnar María Finnbogadóttir, Harpa María Friðgeirsdóttir, Katla Björg Dagbjartsdóttir og Sigríður Dröfn Auðunsdóttir kepptu í stórsvigi og stóðu sig með sóma. María varð í 19. sæti og með þriðja besta tímann í sínum árgangi. Harpa María varð í 32. sæti, Katla Björg varð í 33. sæti og Sigríður varð í 39. sæti. Í stuttu prógrammi á listskautum keppti Herdís Birna Hjaltalín. Hún varð í 19. sæti. 

Í skíðagöngu 7.5 km kepptu þeir Arnar Ólafsson, Pétur Tryggvi Pétursson og Sigurður Arnar Hannesson.  Sigurður varð í 38. sæti á tímanum 20:40,2, Arnar varð í 48. sæti á tímanum 22:40,0 og Pétur varð í 51. sæti á tímanum 23:12,1. Anna María Daníelsdóttir keppti í 5 km skíðagöngu og varð í 38. sæti á tímanum 16:33,3. 

Hægt er að fylgjast með meðal annars dagskrá og úrslitum á heimasíðu leikanna - sjá hér.

Fleiri myndir má sjá á myndasíðu ÍSÍ.

Myndir með frétt