Beint á efnisyfirlit síðunnar

Á döfinni

26.07.2024 - 28.11.2019

París 2024

Ólympíuleikarnir fara fram í París í...
20.09.2024 - 21.09.2024

Ársþing SKÍ 2024

Ársþing Skíðasambands Íslands verður haldið...
22.10.2026 - 28.11.2019

YOG 2026 - Dakar

Ólympíuleikar ungmenna (YOG) fara fram í...
30

Heiðranir í Vestmannaeyjum

26.01.2017

Þór Ísfeld Vilhjálmsson fyrrverandi formaður Íþróttabandalags Vestmannaeyja var sæmdur Heiðurskrossi ÍSÍ á uppskeruhátíð ÍBV 18. janúar síðastliðinn í Vestmannaeyjum fyrir langvarandi og góð störf í þágu íþróttahreyfingarinnar. Það var Ingibjörg Bergrós Jóhannesdóttir úr framkvæmdastjórn ÍSÍ sem afhenti Þór heiðursviðurkenninguna fyrir hönd ÍSÍ. Þór hefur sinnt forystustörfum í íþróttahreyfingunni í áratugi, lengst af sem formaður Íþróttabandalags Vestmanneyja. Hann hefur átt sæti í vinnuhópi ÍSÍ um Ferðasjóð íþróttafélaga frá upphafi sjóðsins og sinnt þar mikilvægu starfi í þágu hreyfingarinnar á landsvísu, svo fátt eitt sé nefnt.
Við sama tækifæri var Gísli Valtýsson sæmdur Gullmerki ÍSÍ en Gísli á einnig að baki langt og farsælt starf í þágu íþrótta.

ÍSÍ óskar þeim félögum Þór og Gísla innilega til hamingju með heiðursviðurkenningarnar.

Myndir með frétt