Beint á efnisyfirlit síðunnar

Á döfinni

22

Vorfjarnám í þjálfaramenntun

13.01.2017

Vorfjarnám 1. og 2. stigs þjálfaramenntunar ÍSÍ mun hefjast mánudaginn 6. febrúar nk. og tekur það átta vikur á 1. stigi en fimm vikur á 2. stigi. Nám beggja stiga er allt í fjarnámi, engar staðbundnar lotur og gildir námið jafnt fyrir allar íþróttagreinar. Námið hefur verið afar vinsælt undanfarin ár og þátttakendur komið frá fjölda íþróttagreina. Námið veitir réttindi til íþróttaþjálfunar og jafnframt rétt til áframhaldandi náms til frekari réttinda. Þátttökugjald á 1. stig er kr. 25.000.- og öll námskeiðsgögn eru innifalin í því verði. Þátttökugjald á 2. stig er kr. 22.000.- og öll námskeiðsgögn innifalin.

Skráning er rafræn og þarf henni að vera lokið fyrir föstudaginn 3. febrúar. Rétt til þátttöku á 1. stigi hafa allir sem lokið hafa grunnskólaprófi. Til þátttöku á 2. stigi þarf að hafa lokið 1. stigi, hafa gilt skyndihjálparnámskeið og 6 mánaða starfsreynslu sem þjálfari.

Hér er slóð á skráningu í vorfjarnám þjálfaramenntunar ÍSÍ 2017, 1. og 2. stig.

Allar nánari upplýsingar um fjarnámið og aðra þjálfaramenntun ÍSÍ gefur Viðar Sigurjónsson í síma 460-1467 og 863-1399 eða á vidar@isi.is.