Beint á efnisyfirlit síðunnar

Á döfinni

26.07.2024 - 28.11.2019

París 2024

Ólympíuleikarnir fara fram í París í...
20.09.2024 - 21.09.2024

Ársþing SKÍ 2024

Ársþing Skíðasambands Íslands verður haldið...
22.10.2026 - 28.11.2019

YOG 2026 - Dakar

Ólympíuleikar ungmenna (YOG) fara fram í...
30

Afmælishóf SÍÓ 4. desember

05.12.2016

Samtök íslenskra Ólympíufara stóðu fyrir afmælishófi fyrir Ólympíufara og þátttakendur á Ólympíuleikum þann 4. desember. Heiðursgestur var Guðni Th Jóhannesson forseti Íslands. Það er óhætt að segja að Ólympíufarar og makar fjölmenntu en hátt í 100 manns mættu á hófið. Markmið fundarins var að bjóða Ólympíuförum að hittast og rifja upp gamla tíma ásamt því að halda uppá afmæli eftirtalinna leika: Tórínó (2006), Atlanta (1996), Innsbruck og Montreal (1976), Cortína og Melbourne (1956).

Guðni Th Jóhannesson forseti Íslands ávarpaði gesti og þakkaði gott boð. Hann minnti gesti á að hann kæmi úr mikilli íþróttafjölskyldu og faðir hans Jóhannes Sæmundsson hefði einmitt farið sem þjálfari frjálsíþróttaliðs Íslands á leikana í Munchen 1972.

Lárus L. Blöndal forseti ÍSÍ ávarpaði einnig gesti og við það tækifæri veitti hann Jóni Hjaltalín Magnússyni formanni SÍÓ heiðurskross ÍSÍ fyrir störf hans í þágu íþrótta á Íslandi.

Elstu þátttakendurnir sem mættu voru Óskar Jónsson (sumar) og Þórir Jónsson (vetrar) sem kepptu árið 1948, en sá yngsti var Guðni Valur Guðnason kringlukastari sem keppti nú í sumar á leiknunum í Ríó.