Beint á efnisyfirlit síðunnar

Á döfinni

05.12.2024 - 05.12.2024

Fundur

Fundur verður haldinn í framkvæmdastjórn ÍSÍ...
27

Nýjar íþróttagreinar í Tókýó 2020

05.08.2016

Í gær samþykkti Alþjóðaólympíunefndin að keppt yrði í fimm nýjum íþróttagreinum á næstu Ólympíuleikum sem haldnir verða í Tókýó 2020. Það eru íþróttagreinarnar karate, hafnabolti, klifur, hjólabretti og brimbretti. Á Ólympíuleikunum 2016, sem verða settir formlega í kvöld í Ríó, er keppt í 28 greinum. Íþróttagreinarnar á Ólympíuleikunum eru því orðnar 33 því um hreina viðbót er að ræða.

Alþjóðaólympíunefndin er á þeirri skoðun að færa verði Ólympíuleikana nær ungu fólki og leiðin sem nefndin ákvað að fara í þeim tilgangi er sú að halda keppni á hjólabretti og í íþróttaklifri á stöðvum sem settar eru upp tímabundið í borgunum en ekki að halda keppnir í sérstökum keppnishöllum.

Í frétt á heimasíðu Alþjóðaólympíunefndarinnar má lesa meira um ákvörðun Ólympíunefndarinnar.

Fyrir áhugasama er hægt að forvitnast um komandi Ólympíuleika 2020 í Tókýó hér.