Menntamálaráðherra í heimsókn í Ólympíuþorpinu
![](/library/Myndir/Frettamyndir/Afreks-og-olympiusvid/2016-Lillehammer/H%c3%b3purinn_r%c3%a1%c3%b0herra.jpg?proc=400x400)
Illugi Gunnarsson mennta- og menningarmálaráðherra heimsótti íslenska hópinn í Ólympíuþorpið á Vetrarólympíuleikum ungmenna fyrr í dag. Illugi situr fund ráðherra íþróttamála Norðurlandanna sem haldinn er í Lillehammer. Illugi skoðaði aðstæður í Ólympíuþorpinu, heimsótti vistarverur íslenska hópsins og heilsaði uppá þátttakendur. Á morgun mun ráðherra ná að fylgjast með keppni í alpagreinum þar sem við eigum fulltrúa.