Þátttakendur boðnir velkomnir í Ólympíuþorpið
![](/library/Myndir/Frettamyndir/Afreks-og-olympiusvid/2016-Lillehammer/H%c3%b3pur%c3%adbl%c3%a1u.jpg?proc=400x400)
Þátttakendur á Ólympíuleikum ungmenna í Lillehammer voru boðnir velkomnir í Ólympíuþorpið með fjörugri athöfn fyrr í kvöld. Á dagskrá voru tónlistaratriði og skemmtiatriði auk nokkurra ávarpa.
Dagurinn hjá íslensku þátttakendunum hefur annars farið í að koma sér fyrir og kanna nánasta umhverfi. Keppendur tóku æfingu í dag og létu vel af aðstæðum. Hitastig hefur sveiflast töluvert á svæðinu undanfarnar vikur. Nú eru nokkrar mínusgráður en bjart og fallegt veður. Á komandi dögum mun samkvæmt spá bæta í vind og kólna nokkuð. Á morgun föstudag er æfingadagur og setningarhátíð leikanna um kvöldið. Fyrsti keppnisdagur Íslendinga er svo á laugardaginn. Á myndinni sem fylgir má sjá íslensku þátttakendurna að lokinni móttökuhátíð og liðsfundi í lok dags.