Í nógu að snúast í Ríó
08.02.2016
Það er í nógu að snúast í Ríó við undirbúning fyrir Ólympíuleikana sem hefjast 5. ágúst næstkomandi. Helstu verkefni þessa dagana eru meðal annars:
- Velja 12.000 sjálfboðaliða til að aðstoða við setningar- og lokahátíð leikanna.
- Undirbúa flutning 800 báta fyrir siglingakeppnina.
- Undirbúa flutning 315 hrossa fyrir keppni í hestaíþróttum.
- Setja upp öll tæki og búnað í mötuneyti Ólympíuþorpsins en þar verða framreiddir 60.000 matarskammtar á hverjum degi leikanna. Mötuneytið verður 25.000 fermetrar að stærð.
- Gera öll íþróttamannvirki klár, ásamt mannvirkjum sem hýsa fjölmiðla.
- Gera Ólympíuþorpið klárt fyrir íþróttafólkið og aðstoðarfólk þess.
- Ljúka við gerð verðlaunapeninga og einkennisfatnaðar
- Ljúka við að útsetja lag leikanna
Undirbúningur og framkvæmd Ólympíuleika er risavaxið verkefni og ofangreind verkefni aðeins nokkur af fjölmörgum sem unnin verða fram að leikum. Í febrúar verður farið að prenta miða á leikana og þá verða öll mannvirki prófuð með æfingaviðburðum. Næstu fimm mánuði munu verða haldnir 25 slíkir viðburðir í íþróttamannvirkjum leikanna í Ríó. Ólympíueldur leikanna verður síðan tendraður í Ólympíu í Grikklandi 21. apríl næstkomandi.