Ólympíuleikar í Ríó eftir 200 daga
Sumarólympíuleikarnir 2016 verða settir þann 5. ágúst nk. í Ríó de Janeiro í Brasilíu. Í gær, mánudaginn 18. janúar, voru 200 dagar í að setningarhátíðin fari fram á Maracana vellinum í Ríó.
Búið er að gefa út áætlun um ýmsa viðburði sem munu eiga sér stað á næstu 200 dögum, og hefur tímabilinu verið skipt niður í fjögur 50 daga tímabil.
Í því fyrsta er m.a. verið að prenta miða á viðburði leikanna, semja lag leikanna og framleiða fatnað fyrir sjálfboðaliða.
Í öðrum hluta ber hæst tendrum Ólympíueldsins í Olympiu í Grikklandi, en tendrunin mun eiga sér stað þann 21. apríl nk.
Kyndilhlaupið hefst síðan í þessu þriðja tímabili og þá er einnig verið að vinna í framkvæmdum er snúa að setningar- og lokahátið leikanna.
Hér má finna skemmtilegt myndband um þessi tímamót.