Paralympic - dagurinn
27.10.2015
Paralympic - dagurinn er stórskemmtilegur kynningardagur á íþróttum fatlaðra á Íslandi. Viðburðurinn verður haldinn laugardaginn 31. október nk. frá kl. 14:00-16:00 í frjálsíþróttahöllinni í Laugardal.
Paralympics er stærsta íþróttamót fatlaðra afreksmanna í heiminum. Fólk með fötlun er sérstaklega hvatt til að mæta í frjálsíþróttahöllina og kynna sér íþróttaflóruna.
Á meðal þess sem verið er að kynna eru íþróttagreinarnar boccia, borðtennis, sund, frjálsíþróttir, bogfimi, lyftingar og hjólastólakörfubolti.
Ingó veðurguð tekur á móti gestum og spilar nokkur lög.
ÍSÍ hvetur fólk til þess að mæta á þennan skemmtilega viðburð á vegum Íþróttasambands fatlaðra.