Hnefaleikafélag Reykjavíkur fyrirmyndarfélag ÍSÍ
![](/library/Myndir/Frettamyndir/Fraedslusvid/Hnefaleikaf%c3%a9lag%20RVK%20-%20Copy%20(1).jpg?proc=400x400)
Hnefaleikafélag Reykjavíkur fékk viðurkenningu sem fyrirmyndarfélag ÍSÍ mánudaginn 19. október sl. Það var Sigríður Jónsdóttir ritari framkvæmdastjórnar ÍSÍ og formaður Þróunar- og fræðslusviðs sem afhenti formanni félagsins, Áslaugu Rós Guðmundsdóttur, viðurkenninguna eftir stóra sameiginlega æfingu félagsins í aðstöðu þess að Seljavegi 2.
Á myndunum eru þær Áslaug (til vinstri) og Sigríður.