Ólympíukyndillinn tendraður þann 21. apríl
![](/library/Myndir/Frettamyndir/Afreks-og-olympiusvid/Torch-Rio2016-630x364.jpg?proc=400x400)
Skipulagsnefnd Ólympíuleikanna 2016 tilkynnti nýlega að kveikt yrði á Ólympíukyndlinum þann 21. apríl 2016 í borginni Ólympíu á Grikklandi, þar sem Ólympíuleikarnir til forna fóru fram. Þann 3. maí mun kyndillinn hefja 95 daga för sína um Brasilíu, sem endar þann 5. ágúst þegar að Ólympíueldurinn verður tendraður á setningarhátíð leikanna.
Heimasíða Ólympíuleikanna 2016 er Rio2016.com
Einnig eru Ólympíuleikarnir 2016 með fésbókarsíðuna Ríó 2016