Ársþingi ÍHÍ lokið
![](/library/Myndir/Sambandsadilar/Sersambond/ihi.gif?proc=400x400)
Viðar Garðarsson var endurkjörinn sem formaður sambandsins en aðrir í stjórn eru Árni Geir Jónsson, Björn Davíðsson, Helgi Páll Þórisson og Jón Þór Eyþórsson.
Í varastjórn voru kosin þau Arnar Þór Sveinsson, Linda Brá Sveinsdóttir og Óli Þór Gunnarsson.
Samþykktar voru breytingar á lögum sambandsins og einnig fimm reglugerðum þess og verða breytingarnar settar inn á vef sambandsins fljótlega.
Helsta umræðuefnið fyrir utan fyrrnefnd mál var um landsliðsmál en nk. haust ætti niðurstaða að liggja fyrir í þeim málum.