Öflugt íþróttastarf á Akranesi
Ársþing Íþróttabandalags Akraness var haldið 15. apríl síðastliðinn í Íþróttamiðstöðinni Jaðarsbökkum,
Þingið var vel sótt og umræður fjörlegar um íþróttastarfsemi og mögulega uppbyggingu íþróttaaðstöðu á Akranesi. Mörg mál lágu fyrir þinginu ásamt breytingum á ýmsum reglugerðum bandalagsins. Lögð var fram glæsileg ársskýrsla en starf bandalagsins og aðildarfélaga er til fyrirmyndar og árangur ársins 2014 glæsilegur. Sama á við um rekstur samstæðunar en reikningar þess sýna góða afkomu. Íþróttalegur árangur iðkenda í aðildarfélögum ÍA var góður á árinu 2014.
Sigurður Arnar Sigurðsson var endurkjörinn sem formaður ÍA, Helga Sjöfn Jóhannesdóttir sem varaformaður og Sigurður Elvar Þórólfsson sem ritari. Karitas Jónsdóttir kemur ný inn í stjórnina og verður gjaldkeri og Birna Björnsdóttir meðstjórnandi. Í varastjórn eru þau Svava Þórðardóttir og Brynjar Sigurðsson. Bjarki Jóhannesson, Sigríður Ragnarsdóttir og Steindóra Steinsdóttir gáfu ekki kost á sér til endurkjörs.
Garðar Svansson úr framkvæmdastjórn ÍSÍ sótti þingið fyrir hönd ÍSÍ og flutti kveðju frá Lárusi L. Blöndal forseta ÍSÍ, framkvæmdastjórn og starfsfólki ÍSÍ.