Beint á efnisyfirlit síðunnar

Á döfinni

26.07.2024 - 28.11.2019

París 2024

Ólympíuleikarnir fara fram í París í...
20.09.2024 - 21.09.2024

Ársþing SKÍ 2024

Ársþing Skíðasambands Íslands verður haldið...
22.10.2026 - 28.11.2019

YOG 2026 - Dakar

Ólympíuleikar ungmenna (YOG) fara fram í...
30

100 dagar til stefnu

21.02.2015

Í dag eru 100 dagar þar til Smáþjóðaleikarnir verða settir á Íslandi. Leikarnir munu fara fram dagana 1. til 6. júní 2015 í Reykjavík. Að því tilefni eru tvær nýjar myndir úr myndaröðinni „Náttúrulegur kraftur“ birtar til viðbótar við þær níu sem nú þegar hafa verið birtar, ásamt persónulegum viðtölum við íþróttafólkið á myndunum. Viðtölin má sjá á heimasíðu leikanna www.iceland2015.is undir „Náttúrulegur kraftur“. Einnig verður hægt að fylgjast með íþróttafólkinu í gegnum samskiptamiðlana Facebook, Instagram og Twitter

Þetta eru síðustu tvær myndirnar í myndaröðinni og þær sýna Kristinn Þórarinsson synda í Jökulsárlóni og Berglindi Gígju Jónsdóttur spila blak við Vík á suðurströnd Íslands.

Mikil spenna hefur ríkt fyrir myndunum ellefu, hverjir sitja fyrir og hvaða íslensku náttúrufyrirbæri ber fyrir sjónir, enda einstaklega fallegar myndir. 

Heimasíða leikanna er www.iceland2015.is

Facebook-síða leikanna er Smáþjóðaleikar 2015

#GSSE2015 #Smáþjóðaleikarnir2015

Myndir með frétt