Gunnar endurkjörinn formaður ÍS
![](/library/Myndir/Sambandsadilar/ithrottaherud/is.gif?proc=400x400)
Þing Íþróttabandalags Suðurnesja (ÍS) var haldið í golfskála Golfklúbbs Vatnsleysustrandar í gærkvöldi. Fyrir þinginu lá hefðbundin dagskrá og að henni lokinni fóru fulltrúar allra aðildarfélaga ÍS stuttlega yfir starfsemi sinna félaga á nýliðnu ári. Gunnar Jóhannesson var endurkjörinn formaður ÍS. Friðrik Einarsson var fulltrúi ÍSÍ á þinginu.