Sigurjón endurkjörinn formaður Kraftlyftingasambandsins
21.01.2015Ársþing Kraftlyftingasambands Íslands fór fram í Íþróttamiðstöðinni í Laugardal laugardaginn 17. janúar sl. Sigurjón Pétursson var endurkjörinn formaður sambandsins. Aðrir stjórnarmenn voru ekki í kjöri. Í varastjórn til eins árs voru kosin þau Einar Már Rikarðsson, Árdís Ósk Steinarsdóttir og Jón Sævar Brynjólfsson.
Uppgangur hefur verið í kraftlyftingaíþróttinni síðustu ár og góð afrek verið unnin af afreksíþróttafólki í íþróttinni. Félögum og deildum hefur fjölgað á landsvísu og útbreiðsla íþróttarinnar gengið vel.
Helga Steinunn Guðmundsdóttir varaforseti ÍSÍ sótti þingið fyrir hönd ÍSÍ.