Ráðstefna um afreksíþróttir í tengslum við RIG
14.01.2015Íþróttabandalag Reykjavíkur og Íþrótta- og Ólympíusamband Íslands standa fyrir íþróttaráðstefnu í samstarfi við Háskólann í Reykjavík fimmtudaginn 15. janúar. Ráðstefnan fer fram í Háskólanum í Reykjavík í stofu V101. Margir áhugaverðir fyrirlesarar munu flytja erindi um afreksíþróttir. Fyrirlestrarnir fara bæði fram á íslensku og ensku. Ráðstefnustjóri verður Sigurbjörn Árni Arngrímsson. Dagskrá ráðstefnunnar má finna hér.