Sochi 2014 - Móttökuhátíð í Ólympíuþorpi
![](/library/Myndir/Frettamyndir/Afreks-og-olympiusvid/2014-Sochi/IMG-20140201-00071.jpg?proc=400x400)
Tímasetningu á móttökuhátíð íslenska hópsins hefur verið breytt.
Hún fer fram fimmtudaginn 6. febrúar nk. en hefur verið flýtt til kl. 12:00 að staðartíma í Derevnya ólympíuþorpinu í fjöllunum við Sochi, en þar eru vistarverur keppenda í alpagreinum. Á hátíðinni eru þjóðsöngvar viðeigandi landa leiknir og lönd boðin velkomin á leikana.
Á myndinni má sjá svæðið þar sem móttökuhátíðin fer fram.