Umsóknarsvæði Ferðasjóðs íþróttafélaga
Umsóknarsvæði Ferðasjóðs íþróttafélaga er opið. Frestur til að skila inn umsóknum vegna keppnisferða á árinu 2013 rennur út á miðnætti föstudaginn 10. janúar 2014. Öll íþrótta- og ungmennafélög innan vébanda ÍSÍ geta sent inn umsóknir í sjóðinn. Hægt er að fara inn á umsóknarsvæðið með því að smella hér eða smella á tengilinn „Ferðasjóður íþróttafélaga” hér hægra megin á heimasíðunni undir listanum „Gagnlegt”.
Við stofnun umsóknar er send vefslóð á uppgefið netfang tengiliðar, sem nýtist sem lykill inn á viðkomandi umsókn þar til umsókn er send. Umsækjendur eru hvattir til að vanda frágang umsókna til að auðvelda og einfalda úrvinnslu þeirra. Listi yfir styrkhæf mót er að finna á umsóknarsvæðinu og þar er einnig að finna svör við algengum spurningum.
Vinsamlegast hafið samband við Höllu Kjartansdóttur skrifstofustjóra ÍSÍ í síma 514 4000 eða í gegnum netfangið halla@isi.is ef nánari upplýsinga er þörf eða ef þið hafið einhverjar ábendingar.