Sigurður Valur endurkjörinn formaður BTÍ
06.11.2013
Ársþing Borðtennissambands Íslands fór fram í Íþróttamiðstöðinni í Laugardal 28. október sl. Sigurður Valur Sverrisson var endurkjörinn formaður sambandsins en með honum í stjórn voru kjörnir þeir Ingimar Ingimarsson, Hlöðver Hlöðversson, Pétur Tómasson og Tryggvi Áki Guðmundsson. Í varastjórn voru kjörnir Halldór Haralz, Pétur Stephensen og Tómas Sheldon. Hafsteinn Pálsson úr framkvæmdastjórn ÍSÍ var fulltrúi ÍSÍ á þinginu en hann var einnig í embætti þingforseta þar.