Sigfús Ólafur Helgason fékk Gullmerki ÍSÍ
05.11.2013Hestamannafélagið Léttir á Akureyri hélt upp á 85 ára afmæli sitt laugardaginn 2. nóvember síðastliðinn. Fjölmargar viðurkenningar voru veittar jafnt ungum sem öldnum á löngum laugardegi félagsins sem var þétt setinn dagskrár frá morgni til kvölds. Viðar Sigurjónsson skrifstofustjóri ÍSÍ á Akureyri afhenti Andreu Þorvaldsdóttur áletraðan platta að gjöf frá ÍSÍ auk blómvandar. Viðar afhenti einnig Sigfúsi Ólafi Helgasyni Gullmerki ÍSÍ fyrir áralöng störf í þágu íþróttahreyfingarinnar. Sigfús var m.a. formaður Léttis 1995-2002, í stjórn Landssambands hestamanna 1996-2010 og formaður og framkvæmdastjóri Íþróttafélagsins Þórs á Akureyri 2006-2012. Hann stjórnaði uppbyggingu á Melgerðismelum í Eyjafirði fyrir Landsmót hestamanna 1998 og hefur verið þulur eða stjórnandi á ótal hestamótum til langs tíma og er enn að. Myndirnar eru af afhendingu plattans og gullmerkisins.