Beint á efnisyfirlit síðunnar

Á döfinni

26.04.2025 - 26.04.2025

Ársþing ÍF 2025

Ársþing Íþróttasambands fatlaðra (ÍF) verður...
27.04.2025 - 27.04.2025

Ársþing HHF 2025

Ársþing Héraðssambands Hrafna-Flóka (HHF)...
14

Vetrarólympíuleikar - Sochi 2014

06.09.2013Þann 6. febrúar 2014 hefst keppni á Vetrarólympíuleikunum í Sochi í Rússlandi, en forkeppni á snjóbrettum (slopestyle) hefst þá á Rosa Khutor Extreme Park svæðinu.

Setningarhátíð leikanna fer fram degi síðar, þann 7. febrúar á Fisht Olympic Stadium, sem er glæsilegur íþróttaleikvangur á miðju Ólympíusvæðinu við Svartahafið. 

Á heimasíðu ÍSÍ má nú finna upplýsingar um keppnisdaga í þeim greinum sem líklegt þykir að Ísland eigi keppendur í á leikunum.  Myndir af Ólympíuhópnum og ýmsar aðar upplýsingar má einnig finna á síðunni.  Hægt er að komast á Sochi 2014 svæði ÍSÍ hér.

Á heimasíðu leikanna má finna mjög ítarlegar upplýsingar um Vetrarólympíuleika á næsta ári sem og Vetrarólympíumót fatlaðra sem fer fram strax í kjölfarið.