Alltaf tekið þátt í Kvennahlaupinu
07.06.2013
Ingibjörg Malen er níu ára en hún hefur tekið þátt í öllum Kvennahlaupum frá fæðingu. Fyrsta árið í kengúrupoka, síðan í kerru, og svo hlaupandi. Hún er að taka þátt í sínu 10. hlaupi í ár og ætlar hún að hlaupa með móður sinni á Reykhólum.
Hefð hefur skapast hjá mæðgum, systrum, frænkum og vinkonum að mæta saman í hlaupið og hvetja hver aðra áfram. Konur geta kynnt sér nálæga hlaupastaði á vef Sjóvá www.sjova.is en þar má einnig finna upplýsingar um tímasetningar hlaupa, lengdir og skemmtidagskrá á hverjum stað fyrir sig.