Sjóvá Kvennahlaup ÍSÍ
05.06.2013Öldrunarheimili út um allt land halda Kvennahlaup hjá sér á næstu dögum. Hjúkrunarheimilið Eir var með Kvennahlaupið í gær, þriðjudaginn 4. júní, þar sem um 140 konur og karlar á öllum aldri tóku þátt.
Einnig verður hlaupið á eftirfarandi stöðum: Gerðubergi, Seljahlíð og Sóltúni miðvikudaginn 5. júní, Hrafnistu í Reykjavík, Boðaþing, Furugerði 1 og Skjól föstudaginn 7. Júní. Á Hrafnistu í Hafnarfirði 14. júní. Einnig verður Kvennahlaup haldið á Dalbraut Reykjavík, Ás í Hveragerði, Eirhömrum í Mosfellsbæ og á Höfða Akranesi.

Nánari upplýsingar um hlaupastaði má finna hér og á Facebook undir Sjóvá Kvennahlaup ÍSÍ.