Hreyfum okkur saman
Sjóvá Kvennahlaup ÍSÍ fer fram laugardaginn 8. júní. Markmið Kvennahlaupsins er að hvetja konur til þess að hreyfa sig og stunda heilbrigt líferni.
Slagorð Kvennahlaupsins í ár er „Hreyfum okkur saman“ í tilefni af samstarfi Sjóvá Kvennahlaups ÍSÍ við styrktarfélagið Göngum saman. Á hverju ári er valið eitt málefni tengt konum til þess að vekja athygli á og í ár var ákveðið að vera í samstarfi við styrktarfélagið Göngum saman sem styrkir grunnrannsóknir á brjóstakrabbameini. Félagið leggur áherslu á hreyfingu sem forvörn og heilsueflingu. Árlega greinast um 195 konur á Íslandi með brjóstakrabbamein sem er algengasta krabbamein meðal kvenna. 90% þeirra sem greinast með brjóstakrabbamein eru á lífi fimm árum eftir greiningu. Árið 2012 veiti Styrktarfélagið Göngum saman 10 milljónir króna til íslenskra rannsóknaraðila á sviði grunnrannsókna á brjóstakrabbameini. Með þeirri styrkveitingu hefur Göngum saman úthlutað alls rúmum 32 milljónum króna til grunnrannsókna á brjóstakrabbameini á fimm árum.
Nánari upplýsingar um Göngum saman má nálgast hér en upplýsingar um Kvennahlaupið og hlaupastaði má finna á www.sjova.is og á Facebook undir Sjóvá Kvennahlaup ÍSÍ.